31mars

Hvar er ég stödd í dag?

Ansi er nú langt síðan að hef gefið mér tíma að hanga á netinu og uppfæra þetta blessaða blogg mitt. Andgiftin ekki með því besta móti á þessu nýja ári og fylgdi greinilega ekki með í för frá Brasilíu. Greinilega slappaði of mikið af þar og naut lífsins eins og sannri brasiískri dömu sæmir. Enda farin að sökkva mér djúpt inn í hverja menninguna á fætur annarri enda orðin ansi víðförul þetta síðasta ár.

Upp á síðkastið hef ég haft ansi mörgum hnöppum að hneppa og margt óvænt hefur gerst í þessari rússíbanaferð minni á Ítalíu... ÉG ER Á ÍSLANDI.  Já þið lásuð rétt en eins og líf mitt hefur verið undanfarið þá gerist allt mjög hratt og í þetta skiptið hafði ég hálfan sólarhring að pakka, sofa og koma mér út á völl. Þetta skiptið er ég í engri social heimsókn en þess í stað er tíminn minn helgaður vinnu og það ansi mikilli. Mjög spennandi verkefni sem ég er að fara að taka mér fyrir hendur. Nánari upplýsingar eru fáanlegar að mér viðstaddri. Ætla að reyna eftir fremsta megni að sinna bæði vinnu og vinum en verð ekki lengi á skerinu í þetta skiptið.
Viðtalstímar eru í síma 8211108 Hlæjandi
31. mars 2008 klukkan 21:33
Elva Rut Erlingsdóttir
1 athugasemd
18febrúar

Mi sento male

Helgin að baki og eftir stóð slappleiki og skvetta af flensu. Enda ekki að undrast því þessa dagana er fimbulkuldi í Rómarborg. Hitastigið er undir frostmarki með tilheyrandi raka sem smígur inn að beinum. Hlaut að koma að þessum tímamótum en ég hef ekki verið veik síðan ég steig fæti niður á Ítalíu og það fyrir ári síðan. En eftir gott föstudagskvöld í samfagnaði með öðrum Íslendingum hér í Róm á árlegu þorrablóti, nældi ég mér í einhvern leiðindarskít og afleðingarnar... missti af löngu skipulagðri ferð til Flórens að heimsækja Salvatore Ferragamo í dag, mánudag. Sat eftir í Róm með kvef, hálsbólgu og slappleika. Ansi svekkjandi! En þegar á botninn er hvolft átti ég ánægjulegt kvöld á föstudaginn og afgangurinn af helginni eyddur undir þaki í San Lorenzo.  En eftir öll rólegheitin er ég öll að hressast og vonast eftir að taka upp fyrri rútínu strax í fyrramálið. Mi sento meglio!
18. febrúar 2008 klukkan 22:26
Elva Rut Erlingsdóttir
3 athugasemdir
14febrúar

Biðin á enda - NÝ FÆRSLA!

Nei, ekki hætt að blogga. Vil afsaka langa bið eftir nýrri færslu og myndum frá ævintýrunum mínum. Allt frá því að ég kom heim til Rómar frá Brasilíu hef ég verið ansi upptekin og gefið mér lítinn tíma að hanga á netinu að ástæðulausu. Síðustu vikur hafa verið undirlagðar undir verkefnavinnu og sætti ég mig við lítið annað en setja gæðastimpil Elvu á lokaútkomuna. Þeirri vinnu er nú lokið og stimpillinn er auk þess kominn í heimahús. Þess á milli tók ég skemmtilegt "roadtrip" með Caroline vinkonu minni og vini hennar frá Mexíkó. Leigðum ágætis fararkost og keyrðum til Flórens og nærliggjandi bæi, s.s Pisa, Livorno, CinqueTerre, La Spezia, Viareggio og Tirrenia. Reyndum að gera þetta eins ódýrt og mögulegt var og gistum á ansi skrautlegum gistiheimilum á áhugaverðum, afskekktum stöðum. Bara skemmtilegri minningar fyrir vikið. 

Á morgun fæ ég smjörþef af íslenskri menningu sem hefur ekki verið upp á marga fiska í rúmlega heilt ár. Já, tíminn líður heldur betur hratt. Stefnir í árs afmæli mitt hér í Róm og má segja að dvölin sé farin að hafa varanleg áhrif á tengslin mín heim. Mitt eigið móðurmál er farið að láta á sjá og má sjá greinamun á hrynjandanum í röddinni minni og orðavali. Svo blanda ég bæði ensku og ítölsku inn á málið með tilheyrandi handahreyfingum, útkoman stórskemmtileg. Allavega ekki hægt að segja að ég sé ekki að lifa mig inn í ítalska kúltúrinn. Á morgun er hins vegar "þorrablót" á vegum sendiráðsins. Þar munu allir Íslendingarnir í Róm, þessir allir þrjátíu eða svo, hittast og gæða sér á íslensku góðmeti í bland við íslenskan léttleika. Alltaf gaman að fara í ekta íslenskt partý með tilheyrandi drykkju og kátínu Ullandi

Nýjar myndir eru væntanlegar!
14. febrúar 2008 klukkan 23:00
Elva Rut Erlingsdóttir
Engin athugasemd
20janúar

Pics from Brazil

Tvö myndaalbúm af Brasilíuförinni eru komin á síðuna. Myndirnar eru staðsettar undir TRIPS hér á hægri væng eða smella á linkinn hér að neðan. Fleiri myndir eru væntanlegar innan skamms.

http://www.facebook.com/album.php?aid=26336&l=9f077&id=731796926
http://www.facebook.com/album.php?aid=26338&l=80782&id=731796926


20. janúar 2008 klukkan 15:21
Elva Rut Erlingsdóttir
2 athugasemdir
17janúar

Myndir á næsta leiti

Loksins komin heim til Rómar eftir geggjaða ferð í Brasilíu. Reyndar kom fyrir rúmri viku en hef haft öðrum mikilvægar hnöppum að hneppa en á hanga á netinu síðustu daga. Ætla að bæta úr því og leyfa ykkur að fylgjast með gangi mála næstu vikur enda bara skemmtilegir tímar framundan...
Myndir af ferðinni eru væntanlegar innan skamms.
17. janúar 2008 klukkan 12:46
Elva Rut Erlingsdóttir
Engin athugasemd
07janúar

Brasilía eða er ég stödd í Afríku?

Ég er holdgervingur letinnar þessar undanfarnar vikur eins og sjá má á afkastalitlum bloggskriftum. Þetta frí mitt í Brasilíu hefur svo sannarlega margborgað sig. Ég bíst við að koma til Rómar endurnærð með tvöfalda orku eða hallast í hina áttina og held áfram mínum uppáteknum hætti og leggst í enn meiri leti. En það er reyndar ekki í boði þar sem endaspretturinn á masternum er í nánd og enginn slaki í boði.
Ég er búin að lifa geggjuðu lúxuslíferni í rúmlega 3 vikur og gert lítið annað en að slappa af hérna í sólinni. Vel á minnst á hitann þá hefur hann verið að slá í 38 stig hér í Ilha Bella en rúmlega 30 gráður í Sao Paulo.  Síðustu dagana á eyjunni voru sleiktir á sjónum í samfloti með höfrungum sem og þremur hvölum sem við komum auga á. Þetta er sjaldséð sjón og tileinka ég mér heiðurinn af þessari upplifun Hlæjandi Safaríferðin var rétt að byrja enda áttum við eftir að sjá lítinn sætan apa á einni af þeim eyjum sem við áttum kost á að taka sundsprett að. Við ferðalangarnir urðum pínu skelkaðir við nýja meðliminn í hópnum sem fylgdi okkur hvert fótmál. En okkur sakaði ekki af þessum kynnum og sigldum glöð í bragði með bros á vör frá þessum óvænta fundi.

Skemmst er frá því að segja að á gamlársdag varð vatnslaust í sumarhúsinu í Ilha Bella og þurfti heimilisfaðirinn að kaupa heilan tankbíl til að fylla á birgðirnar enda var kvenkynið farið að óttast mjög um sturtulaust gamlárskvöld. Óheillafarirnar stoppuðu ekki þar, því þegar við runnum í hlaðið á heimili fjölskyldunnar í San Jose Los Campus þá tók við okkur rafmagnsleysi sem stóð fram á nótt. Ég furða mig enn á því hvað fólk gerði án rafmagns. Hehe! Við vinkonurnar fundum ekki upp á neinu og fórum í háttinn um tíuleitið! Sannkallað ævintýri sem hefur fylgt mér í þessari ferð minni.
Nú slappa ég af við sundlaugarbakkann þangað til ferðin mín tekur enda sem er á miðvikudagskvöldið. Kem þó ekki fyrr en á fimmtudagskvöldið til Rómar. Er farin að hlakka til enda komin með nóg af sól og hita í augnablikinu. Ég er allavega búin að sóla mig fyrir allt þetta ár og orðin vel steikt Koss

07. janúar 2008 klukkan 23:29
Elva Rut Erlingsdóttir
2 athugasemdir
01janúar

Felice Anno Nuovo

Gleðilegt nýtt ár og þúsund þakkir fyrir það gamla þó stutt hafi verið enda aðeins rúmlega tveir mánuðir sem ég naut þess að vera á mínu heimaslóðum.

Mikið getur lífið verið erfitt (or NOT). Ég hef aldrei upplifað annan eins lifnað og mikla slökun og allt í sama pakkanum. Hef ekki gefið mér neinn tíma að uppfæra ykkur um ástandið í Brasilíu né annað sem á daga mína hefur drifið enda alveg hrikalega upptekin í "taninu"mínu, siglandi á snekkju, í sólbaði á ströndina eða við sundlaugarbakkann, sötrandi jarðaberja Caipiroska, lúrandi í hengirúmi eða bara horfa upp í stjörnubjartan himinninn Koss Ég get svo sannarlega ekki kvartað yfir undanförnum dögum og vikum. Einstaklega heppin að fá tækifæri að upplifa jól og áramót í þessu líka undurfagra landi með yndislegri fjölskyldu sem ég er orðin stór hluti af. 

Jólunum eyddi ég í San Jose Los Campos sem er borg rétt fyrir utan Sao Paulo. Minni erill og meira öryggi sem þar finnst en mun minna við að hafast þar í borg. Enda var afslöppun aðeins í boði og gert nóg af því við sundlaugarbakkann. Eftir jólin var farið til Ilha Bella sem er lítil eyja þar sem fjölskyldan á fallegt "sumarhús". Veit ekki alveg hvað skal kalla þetta en ég er stödd í algjörri draumaveröld og eru vistarverurnar mun betri en eitthvað sumarhús eins og við þekkjum það. Hér er allt til alls og engin þörf á að hreyfa sig nema þegar förinni er heitið út á sjó þar sem við liggjum í sólbaði á "húddinu" á snekkjunni þeirra og leyfum vindinum að leika um okkur í öllum hitanum sem slær í 38 stig. Ef ekki í sólbaði þá erum við svamlandi í sjónum í átt að næstu eyju. Eiginlega þarf að láta klípa mig svo óraunverulegt er þetta en ætla að njóta þess meðan ég get eða þar til 9.janúar.

Njótið þess að vera til... því lífið er yndislegt!
01. janúar 2008 klukkan 17:03
Elva Rut Erlingsdóttir
1 athugasemd
26desember

Gleðilega hátíð!

Vill óska öllum gleðilegra jóla og vonandi hafið þið það gott yfir hátíðarnar.
Á meðan nýt ég þess að sleikja sólina og hugsa um snjóinn og kuldann heima á Íslandi. Frekar skrítin tilfinning en einstök upplifun. Áramótunum mun ég fagna á ströndinni í voðalega fínum einkaklúbbi, klædd hvítu frá toppi til táar þar sem hvítt táknar frið sem á að endurspegla komandi ár. Þemað verður disco þetta árið og eru skemmtiatriði í samræmi við það. Mjög ólíkt hátíðarhöldunum sem maður hefur vanist heima á klakanum en alltaf gaman að breyta til af vananum og upplifa nýja siði.

Ætla að halda áfram að sóla mig enda algjört mission í gangi Ullandi
26. desember 2007 klukkan 14:53
Elva Rut Erlingsdóttir
1 athugasemd
19desember

Hið ljúfa líf í Brasilíu

Eftir 30 tíma ferðalag er ég komin til Brasilíu. Ég er stödd hér í boði fjölskyldu Carol, minnar bestu vinkonu og meðleigjanda í Róm. Ferðalagið var ansi langt og þurfti meðal annars að ferðast í 5 tíma í lest til Mílanó, rútuferð frá lestarstöðinni að flugvellinum og bíða í rúma 8 klukkustundir að næturlagi. Þaðan tók ég flug til London í rúma 2 tíma þar sem ég skipti yfir í aðra vél til Sao Paulo sem tók hvorki meira né minna en 12 klukkustundir. Ferðalagið var langt en gekk mun betur en ég þorði að vona og var svo sannarlega vel þess virði því ég lifi algjöru prinsessulífi þessa daganna. Fjölskyldan lifir þessu líka kóngalífi en það gera reyndar ansi margir því stéttaskiptingin er mjög mikil og kostar lítið að hafa aukahjálp í hinum ýmsum verkefnum. Hér er ég nánast með þjóna á hverjum snærum og þarf ekkert að gera annað en að vera ég sjálf og brosa framan í heiminn. Ekki erfitt verkefni miðað við ávinninginn sem ég nýt. Frábærri matseld af hálfu kokkarins hvert hádegi með endalaust mikið af ferskum ávöxtum við hendina, sef í þessu flottasta prinsessuherbergi með útsýni yfir sundlaugina sem er umlukinn hálfgerðum dýragarði með bæði sjó- og landskjaldbökum, tveimur fallegum fuglum frá Amazon, öðrum grænum (þessum leiðinlega) sem talar, tveimur páfagaukum, endum og fiskum í tjörninni, og tveimur fallegum hundum af mjög sérstakri tegund. Nú spyrja menn sig örugglega, þvílík vinna sem fylgir öllum þessum dýrum! Já og nei, en það er auðvitað maður í vinnu sem sér um dýrin og garðinn. Ekki að spyrja að því. Svo er annar maður í vinnu sem sér um að útrétta fyrir fjölskylduna.  Lúxuslíf! 
Talandi um bílskúrinn en hann rúmar 6 bifreiðar en vinkona mín er reyndar ekki alveg viss hversu mörg ökutæki tilheyra fjölskyldunni sem flestir bílarnir hafa skotheldar rúður til varnar öllum krimmunum sem eru á víð og dreif um Brasilíu. Ég er þó í öruggum höndum heimamanna og hef engar áhyggjur. Ég ætla að reyna að forðast spítalaheimsókn í þessari ferð. Reyndar hef ég verið að safna þeim eins og aðrir safna minjagripum frá hverri borg. Hehe! Þetta líf er allavega eitthvað sem ég gæti vel vanist. Kannski að ég fari bara ekkert aftur til Rómar og setjist hér að í miklum vellystingum og fínheitum.
19. desember 2007 klukkan 17:26
Elva Rut Erlingsdóttir
2 athugasemdir
09desember

Fimbulkuldi í bland við endalausa rigningu

Fyrst núna sé ég þörfina á öllum þeim fatnaði sem er fáanlegur úr ulli; nærfatnaði, peysum, sokkum, húfum, vettlingum, ekki sé minnst á dúnúlpu og hreinlega loðfeldum. Hér er ekkert nema skítakuldi og vosbúð alla daga. Ég skelf á beinunum upp á hvern dag og þá sérstaklega í skólastofunni sem er án miðstöðvaofna og styðjumst við agnarsmáan rafmagnsofn sem hefur ekki undan að hita og slær út rafmagnið að jafnaði einu sinni á dag. Á skóladegi sem varir í 9 klukkustundir sit ég kappklædd í 2 peysum, með vettlinga og í úlpu, sem er ekki sinni nóg. Átti svo sannarlega ekki von á þessu þegar ég ákvað að flytjast búferlum til Ítalíu og skilja eftir flest allt sem flokkast undir hlýindi. Þakka guði fyrir að eiga bestu mömmu í heimi sem hefur verið í fullri vinnu að hugsa um stelpuna sína og senda mér ýmsar nauðsynjar frá klakanum sem inniheldur að mestu vörur frá 66° Norður.

Annars má ég til með að upplýsa landsmenn að ég er á barmi þess að vera eftirlýst af rómversku lögreglunni. Síðasta vika var ekki beint mín vika þar sem ég var tekin í tjékk af eftirlitsmönnum ATAC, samgöngukerfisins í Róm. En strætókerfið er ansi sérstakt þar sem maður kaupir annaðhvort mánaðarmiða, vikumiða eða tóman miða sem þú þarft að virkja í strætóinum sjálfum í sérstökum vélum. En þetta er eitthvað sem heimamenn "gleyma" að gera og þar á meðal ég. Fyrst ég bý hérna ætla ég ekkert að hegða mér eins og túristi og láta ítölsk yfirvöld valta yfir mig. Ef þú ert tekin í tjékk þá er þér boðið að borga á staðnum 50 evrur eða fá senda rukkun heim að dyrum upp á 100 evrur. Þetta er verulega loðið og þegar fólk borgar á staðnum stinga þeir "þýfinu" inn á sig og skrá þetta hvergi og engin kvittun gefin.
Hvern dag er ég með hjartað i buxunum en með vökul augu í átt að inngöngudyrum strætósins og fylgist með hvort eftlitsmenn eru á ferð. Á sunnudaginn var ég svo óheppin að vera ekki með tóman miða á mér og gat því ekki stimplað miðann þegar ég sá eftirlitið nálgast. Fékk því sekt og var mér boðið að borga aðeins hálft gjald, 25 evrur. Ég nennti ekki að þræta og eiga í vændum eftirmála af þessum fundum og ákvað því að borga gjaldið. Frá mér rölti "löggann" glöð og sátt með extra allowence í vasanum.
Í fyrradag var ég á leiðinni úr skólanum helltist yfir mig óhugur og ég tek tóma kortið mitt upp og sting í úlpuvasann. Ég tek næsta strætó og þegar nær dróg síðasti stoppi sé ég 3 eftlitsmenn á vappi. Ég hugleiddi að stökkva út en of seint þar sem afturdyrnar lokuðust og framendinn opnaðist. Ég hélt að ég væri stödd í martröð því tvisvar á einni viku er næstum óhugsanlegt. Ég færði mig nær útöngudyrunum en "löggurnar" nálguðust óðfluga. Ég rölti því í rólegheitum í hina áttina og teygði mig í vélina til að virkja rútumiðann sem gaf frá sér þetta líka yndislega hátt hljóð sem auðvitað hringdi viðvörunarbjöllum. Nokkrum sekúndubrotum síðar var ég beðin um miðann og skilríki sem segir mér að ég hafi ekki náð að blekkja eyru þeirra. Ég ákvað að gerast ljóskari en allt sem telst heimskt og útskýri fyrir þeim að skilríki væru ekki með í för né skotsilfur. Ég set upp vængbrotið bros og reyni að færa hann yfir á mitt band með vorkun einni saman sem var á góðri leið með að virka þar til ítalskur farþegi tekur sig til og ætlar að hjálpa stelpunni. Hann hreytir í "lögguna" ýmsum misfögrum orðum með allri sinni ítalskri snilli. Þarna stóð ég í miklum hávaða og rifrildi og skildi ekki orðaskil mannanna. Hin svokalla lögga biður mig um að koma afsíðist. Ég var farin að sjá ansi skrautlega atburðarás fyrir mér, jafnvel ósk um deit síðar um kvöldið aðeins til að sleppa við sekt. Ekkert sem kemur mér á óvart enda ítölsk lögregla spilltari en allt sem telst spillt vera. En í þessu tekur eftirlitsmaðurinn upp símann, lítur undan og segist ætla að hringja í hið sanna lögregluyfirvald. Enn hélt rifrildið áfram og sá ég gullið tækifæri til að flýgja vettvang sem ég gerði. Ég tók á rás og upp í næsta leigubíl. Mögnuð atburðarrás! Ekki annað hægt að segja að ég ítalsk blóð sé farið að renna i mínum æðum Hlæjandi
09. desember 2007 klukkan 15:19
Elva Rut Erlingsdóttir
3 athugasemdir

Aðalvalmynd

Tíminn líður hratt

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Come ti chiama?

Nokkur orð eru áhrifameiri en engin...

Hafið samband!

Email: elvarut81@gmail.com
cell. +39 3401673391

Luxury Marketing Management - Sponsors

Pics from Iceland

Innskráningar kubbur